Tært Ísland.
Við búum hér á litla Íslandi, perlu Norður-Atlandshafsins, erum stolt af náttúrufegurð og hreinu vatni. Þrátt fyrir þetta finnst mér við sífellt vera að nálgast hin Vesturlöndin í mengun og spilltri jörð. Þegar viðrar sem best hér í Reykjavík, sól skín í heiði og vindurinn tekur sér pásu, fær maður allt í einu að finna (smjör)þefinn af menguninni sem umferðin til og frá miðbænum hefur með sér. Þá er auðvelt að ímynda sér ástandið í stærri borgum eins og Mexíkóborg og Aþenu þar sem takmörkun á umferð og jafnvel gasgrímur tíðkast. Í týpískri íslenskri veðráttu fýkur þetta út í himinhvolfið jafn óðum og fæstir gefa þessu nokkurn gaum, en kannski er það umhuga vert þegar magn rykkorna í borginni fer yfir ráðlögð heilbrigðismörk.
Erum við Íslendingar að fara betur með umhverfið okkar en þjóðirnar í kringum okkur? Eða erum við bara svoldið eftirá í að spilla náttúrunni með iðnaðarverksmiðjum og stórvirkjum. Hvers vegna erum við ekki farin að huga meira að hreinni orkugjöfum, vetnis- eða rafknúnum bílum? Það er skemmtileg pæling að Kárahnjúkavirkjun framleiðir næga orku til að knýja allan bílaflota Íslendinga, en kannski er þeirri orku betur eytt í að knýja álver eða annan iðnað sem veitir fólki störf.
Nú þegar bensín hækkar sífellt í verði hlýtur að koma að því að það verður jafn hagkvæmt eða hagkvæmara að nota vetni eða aðra umhverfisvæna orkugjafa. Á Íslandi er víst nóg af orkulindum svo hér tækifæri á að reyna að nýta þá orku til að framleiða rafmagn í þónokkru mæli og jafnvel flytja út í formi vetnis. Þegar/Ef olíulindir klárast þá verður fyrirspurn eftir öðrum tegundum af eldsneyti gríðarleg.
Bara smá pæling frá
Umhverfisvæna verkfræðingnum, sem hjólar í vinnuna.

0 Hugmyndir:
Post a Comment
<< Home