Draumur: Veikt hjarta
Mig dreymdi draum í nótt.Ég var á spítala með veikt hjarta. Háfdán úr sjónvarpinu var læknirinn minn og sagði að ég þyrfti aðgerð. Fyrr en varði var ég kominn með svona 1 cm breiða slöngu undir húðina frá brjóstinu í annan upphandlegginn á mér. Þetta var víst vegna þess að hjartað mitt var ekki nógu sterkt til að dæla blóði í hendina.Ég spurði Hálfdán hvort það væri ekki svoldið skrítið að ég væri hjartveikur aðeins 26 ára og hugsaði með mér "Hvenær ætli ég komist þá næst í körfubolta."Sem betur fer var Krúsa við hlið í draumnum mér og studdi mig gegnum þetta. Hún er annars í Köben núna svo ég er einstæður faðir í nokkra daga.Er maður orðinn svo gamall að maður þurfi að fara að hafa áhyggjur af hjartanu sínu í draumum?
Svo virðist vera.
Svo virðist vera.
Labels: Dagbók


5 Hugmyndir:
Mig dreymir alltaf bara eitthvað fuct up shit í draumunum mínum. Þú ert greinilega orðinn mjög andlega gamall! Hahahaha! Hí á þig!
seinasta færsla:
Friday, July 14, 2006
gefðu okkur nú innsýn í þennan glæsilega heila þinn!
Eina sem mig langar i i jolagjøf, er færsla fra bjarna!
Haha, fékkst enga jólagjöf frá mér
Ég spái því nú samt að þú komir með eina færslu fyrir Pallann þinn á því herrans ári 2007.
Post a Comment
<< Home