Ósanngirni - Flugfélag Íslands

TAKTU EKKI FLUGIÐ
Krúsa og Ingunn litla ætluðu að fljúga til Akureyrar í dag. Greyið Ingunn er því miður búin að vera veik síðustu daga með eyrnabólgu, hita og kvef. Það leit því ekki út fyrir að það væri góð hugmynd að fljúga með hana til Akureyrar í dag. Krúsa hringdi í Flugfélagið í morgun og ætlaði að kanna hvort hægt væri að fá miðan endurgreiddan. Þar sem þetta var svokallaður netsmellur kom í ljós að ekki var hægt að fá hann endurgreiddan. Það var aðeins í boði að breyta miðanum og borga einhverjar 6000 kr. í viðbót sem Krúsa afþakkaði.
3 tímum síðar kom í ljós að Ingunn var laus við hitann og þær mæðgur voru því að spá í að fara jafnvel bara til Akureyrar í sumarbústað til Afa og Ömmu eftir allt saman. En þá kom í ljós að búið var að afpanta miðann og sama hvað við ræddum við sölufólkið hjá Flugfélaginu þá neytuðu þau að leiðrétta þetta. Buðu okkur aðeins að kaupa nýjan miða á fullu verði, 12000 kr.
Svo ég sit uppi með þær sætu mæðgur :S
Sanngjarnt?
Labels: Dagbók


2 Hugmyndir:
Ojjjj, hvað þetta er mikill tremmi! Þetta er náttúrulega bara fáránleg óheppni! Finn til með ykkur. Ég hef bara aldrei flogið innanlands... magnað!
oj bara! ég man líka þegar ég fór þangað að safna auglýsingum fyrir raflost. Leiðindalið.
Post a Comment
<< Home